Kökubakstur

Við á leikskólanum náðum að baka núna í vikunni. Við fengum að fara inn í heimilisfræðistofu og baka þar. Börnin voru mjög áhugasöm og dugleg, þeim þóttu kökurnar góðar og fengu að taka þær með sér heim.